Stillt upp fyrir Gleðigönguna / Reykjavik Pride 2023

Stillt upp fyrir Gleðigönguna / Reykjavik Pride 2023

Hér eru svipmyndir teknar fyrir Gleðigönguna 12. ágúst 2023 meðan var verið að stilla upp fyrir gönguna og hita upp.

Gleðin skein úr andlitum þáttakenda og gesta þó undirtónninn væri alvarlegur í sumum atriðunum. 

Það eru Hinsegin dagar sem skipuleggja gönguna ásamt fjölda annarra viðburða og hér er þeirra lýsing:

„Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast hinsegin fjölskyldan, ásamt stuðningsfólki, í ákalli um sýnileika, kröfu um meiri réttindi og áminningu um þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni. Gleðigangan dregur nafn sitt af þeirri gleði sem við upplifum yfir áunnum réttindum og liðsheild hinsegin fjölskyldunnar, en gangan er þó engu minni kröfuganga, þar sem barist er fyrir hagsmunum hinsegin fólks.“

„Hinsegin dagar skipuleggja Gleðigönguna en atriðin sjálf eru sprottin úr grasrótinni og einstaklingar og hópar geta skipulagt atriði og skráð sig til þátttöku í göngunni.“

Myndirnar tók Páll Guðjónsson sem hefur tekið myndir af gleðigöngunni fyrir GayIce.is síðan 2004 og má skoða þróun göngunnar í myndagalleríunum á www.gayice.is ásamt myndum og myndböndum frá fjölda annarra viðburða á senunni. Sjá www.gayice.is/pictures. Við erum líka að bæta þessum eldri myndagalleríum við hér á samkynhneigd.is.

Smellið á mynd til að sjá hana í fullri stærð. Síðan er hægt að flétta myndunum eða láta þær spila sjálfkrafa með því að opna eina í fullri stærð og ýta á play hnappinn efst til hægri.