Gleðigangan leggur af stað frá gatnamótum Sæbrautar og Faxagötu stundvíslega kl. 14 laugardaginn 11. ágúst og bíður ekki eftir neinum. Gengið verður eftir Kalkofnsvegi, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu. Þá taka við glæsilegir útitónleikar í Hljómskálagarðinum.
En það verður fjölbreytt dagskrá dagana í kringum sjálfa gleðigönguna sem má lesa hér og veglegt tímarit hátíðarinnar er hægt að nálgast á flestum dreifingarstöðum Grapevine eða lesa hér.
Opnunarhátíðin færist aftur í Háskólabíó í ár. Að venju mun fjöldi frábærra listamanna koma fram og færa okkur söng, dans og gleði í hæsta gæðaflokki.
Aðdáendur dragsýninga tóku andköf þegar fréttist að Detox úr RuPaul’s Drag Race væri á leið til landsins. Hún verður í góðum félagsskap því einnig koma fram 7. ágúst Drag-Súgur, Honey LaBronx og hin íslenskættaða Heklina.