Á vef Landlæknis er mikill fróðleikur um kynsjúkdóma og fleira tengt efni. Á síðunni Spurningar og svör um kynsjúkdóma o.fl. er m.a. leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
Spurningar um HIV
- Hvernig smitast HIV?
- Er hægt að smitast af HIV með kossum?
- Hvernig er hægt að koma í veg fyrir HIV-smit?
- Smitast maður nokkuð af HIV ef maður hættir áður en að sáðláti kemur?
- Hvað tekur langan tíma fyrir HIV-veirur að deyja þegar þær koma úr líkamanum?
- Á að fara strax að láta taka blóðprufu ef maður heldur að maður hafi smitast af HIV?
- Hvað græði ég á því að láta athuga hvort ég hafi smitast af HIV?
- Hvar get ég fengið upplýsingar um HIV á íslensku?
- Hvernig smitast flestir af HIV á Íslandi?
- Hvaða einkenni fær fólk þegar það smitast af HIV? Veikist það strax?
Spurningar um kynsjúkdóma
- Er hægt að smitast af kynsjúkdómum á klósettum?
- Getur herpes (kynfæraáblástur) smitað þegar maður hefur engar blöðrur?
- Hvað kynsjúkdómur er hættulegastur?
- Er það rétt að maður geti orðið ófrjór við að fá kynsjúkdóma?
- Er hættulegt að gleypa sæði?
Spurningar um smokka
- Hvaða smokkar eru bestir?
- Er öruggara að nota tvo smokka til þess að koma í veg fyrir smit?
- Er það rétt að það að nota smokka sé eins og að ,,borða karamellu með bréfið utan á"?
- Finnst strákum grunsamlegt ef stelpa gengur með smokka á sér?
- Hvenær á maður að segja að maður vilji nota smokk? Hvað á maður að gera svo það verði ekki hallærislegt?
Aðrar tengdar spurningar
- Hvað kemur mikið af sæði við sáðlát? Getur það klárast ef ég stunda of mikla sjálfsfróun?
- Hvert get ég farið í blóðprufu þar sem algjörum trúnaði er heitið?
Svörin eru hér á vef Landlæknis: Spurningar og svör um kynsjúkdóma o.fl.