Málum gleðirendur! - Opnun Hinsegindaga 2018

Málum gleðirendur! - Opnun Hinsegindaga 2018

Það er orðin hefð að mála regnboga í Reykjavík á Hinsegin dögum og málningarvinnan markar upphaf hátíðarinnar. Hér eru nokkrar svipmyndir af viðburðinum þar sem borgarstjóri Reykjavíkur leggur til hjálparhönd.

"Að þessu sinni verður Skólavörðustígur málaður í regnbogalitum, frá Bergstaðastræti niður að Laugavegi/Bankastræti. Það er ekki að ástæðulausu að regnboginn fær þar aftur heimili á 40 ára afmælisári Samtakanna ’78, félags hinsegin fólks. Gatnamót Skólavörðustígs og Bergstaðastrætis eru tengdari baráttu hinsegin fólks en marga grunar en nánar verður fjallað um það í setningarræðu formanns Hinsegin daga á morgun.

Götumálunin er unnin í samstarfi við Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar og er hluti af verkefninu Torg í biðstöðu í miðborg Reykjavíkur."