Gleðigangan / Reykjavik Pride 2022 svipmyndir

Gleðigangan / Reykjavik Pride 2022 svipmyndir

Hér eru svipmyndir frá Gleðigöngunni 6. ágúst 2022 ásamt nokkrum myndum af útihátíðinni í Hljómskálagarðinum á eftir göngunni.

Gleðin skein úr andlitum þáttakenda og gesta þó undirtónninn væri alvarlegur í sumum atriðunum. 

Það eru Hinsegin dagar sem skipuleggja gönguna ásamt fjölda annarra viðburða og hér er þeirra lýsing:

„Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast hinsegin fólk í einum hópi með fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni.“

„Hinsegin dagar skipuleggja gleðigönguna en atriðin sjálf eru sprottin úr grasrótinni og einstaklingar og hópar geta skipulagt atriði og skráð sig til þátttöku í göngunni. Skilyrði fyrir þátttöku er að atriðin miðli skilaboðum sem varða veruleika hinsegin fólks á einn eða annan hátt.“

Myndirnar tók Páll Guðjónsson sem hefur tekið myndir af gleðigöngunni fyrir GayIce.is síðan 2004 og má skoða þróun göngunnar í myndagalleríunum á www.gayice.is ásamt myndum og myndböndum frá fjölda annarra viðburða á senunni. Sjá www.gayice.is/pictures

Smellið á mynd til að sjá hana í fullri stærð. Síðan er hægt að flétta myndunum eða láta þær spila sjálfkrafa með því að opna eina í fullri stærð og ýta á play hnappinn efst til hægri.

Nýlegar greinar