class='com_content view-article layout-blog itemid-103 j62 j40 mm-hover'> Samkynhneigð - Hinsegin dagar 2026 – Litrík vika fram undan

Hinsegin dagar 2026 – Litrík vika fram undan

Hinsegin dagar 2026 – Litrík vika fram undan

Hinsegin dagar í Reykjavík fara fram 4.–9. ágúst 2026 og borgin mun enn á ný fyllast af litum, gleði, samstöðu og hinsegin menningu. Fjölbreytt dagskrá dagana fyrir Gleðigönguna býður fólki á öllum aldri að fræðast, hittast, skemmta sér og taka þátt í einni stærstu mannréttinda- og menningarhátíð landsins.

Hátíðin hefst með setningu Hinsegin daga þriðjudaginn 4. ágúst. Næstu daga verður Pride Centre hjarta hátíðarinnar, auk þess sem viðburðir fara fram víðs vegar um Reykjavík.

Dagskráin endurspeglar fjölbreytileika hinsegin samfélagsins. Þar má meðal annars finna Regnbogaráðstefnu Hinsegin daga, ungmennadagskrá, fræðslu og samtöl, tónlist, listviðburði, sýningar, samverustundir og skemmtun. Sum koma til að læra og hlusta, önnur til að dansa og fagna – og mörg gera hvort tveggja.

Hver viðburður leggur sitt af mörkum til þeirrar stemningar sem byggist upp alla vikuna og nær hámarki í Gleðigöngunni laugardaginn 8. ágúst. Gangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14 og heldur niður Skólavörðustíg og í gegnum miðborgina. Við Hljómskálagarð tekur síðan við litrík útihátíð.

Gleðigangan er í senn hátíð, sýnileikaganga og kraftmikil krafa um samfélag þar sem öll fá að lifa frjáls, njóta virðingar og vera stolt af því sem þau eru. Þar sameinast fjölskyldur, vinahópar, félagasamtök, vinnustaðir og gestir alls staðar að úr heiminum í einni litríkustu stund ársins í Reykjavík.

Á vefnum okkar má einnig skoða ljósmyndagallerí úr öllum Gleðigöngum í Reykjavík frá árinu 2004. Þar má fylgjast með þróun hátíðarinnar, sjá gömul og ný baráttumál og rifja upp ótal litrík, áhrifamikil og gleðileg augnablik úr sögu Hinsegin daga.

Kynnið ykkur dagskrá Hinsegin daga 2026, veljið ykkur viðburði og takið þátt. Sjáumst á Hinsegin dögum – og í Gleðigöngunni!

Tengdar greinar

Nýlegar greinar