Frá og með 1. september gilda sömu reglur fyrir alla sem vilja gefa blóð, óháð kyni eða kynhneigð. Samkynhneigðir og tvíkynhneigðir karlar eru því ekki lengur útilokaðir frá blóðgjöf vegna þess eins að þeir stunda kynlíf með körlum.
Breytingin felur í sér að hætt er að meta áhættu út frá því hvaða hópi fólk tilheyrir. Í staðinn verður kynhegðun hvers blóðgjafa metin einstaklingsbundið og allir svara sama spurningalistanum.
Samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu er markmiðið bæði að fjölga mögulegum blóðgjöfum og tryggja öryggi blóðþega. Í reglugerðinni er jafnframt tekið sérstaklega fram að ekki megi mismuna blóðgjöfum á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða á borð við kyn eða kynhneigð.
Fjögurra mánaða bið eftir áhættusamt kynlíf
Nýju reglurnar þýða þó ekki að kynhegðun skipti engu máli. Einstaklingur sem hefur stundað það sem skilgreint er sem áhættusamt kynlíf þarf að bíða í fjóra mánuði áður en hann getur gefið blóð.
Það gildir nú jafnt um alla, óháð kyni og kynhneigð.
Í nýju reglugerðinni eru meðal annars nefnd eftirfarandi dæmi um áhættusamt kynlíf:
- kynlíf án verja þegar fólk er ekki í langtíma stöðugu sambandi eða stundar kynlíf utan sambandsins,
- kynlíf með mörgum einstaklingum, hvort sem verjur eru notaðar eða ekki,
- kynlíf án verja með einstaklingi sem stundar áhættusamt kynlíf,
- kynlíf án verja með einstaklingi sem sprautar eða hefur sprautað fíkniefnum í æð,
- og kynlíf gegn greiðslu, hvort sem verjur eru notaðar eða ekki.
Reglurnar byggja því ekki lengur á því hvort karlmaður hafi stundað kynlíf með öðrum karlmanni heldur á mati á þeirri kynhegðun sem um ræðir.
Samband tveggja karla ekki áhættuþáttur í sjálfu sér
Þetta hefur til dæmis þá þýðingu að tveir karlar í langtíma stöðugu sambandi eru ekki sjálfkrafa metnir með öðrum hætti en kona og karl í sambærilegu sambandi.
Á sama tíma getur gagnkynhneigður einstaklingur þurft að fresta blóðgjöf í fjóra mánuði ef kynhegðun hans fellur undir nýju áhættuviðmiðin.
Viðmiðið færist þannig frá því með hverjum fólk stundar kynlíf yfir í hvernig kynhegðun þess hefur verið.
Nýr spurningalisti fyrir alla
Þorbjörn Jónsson, yfirlæknir Blóðbankans, segir í samtali sem Vísir greinir frá að nýr spurningalisti verði tekinn í notkun þar sem einstaklingsmiðað áhættumat taki við af eldri hópaviðmiðum.
„Allir blóðgjafar munu því framvegis svara sama spurningalistanum,“ segir Þorbjörn.
Hluti af forsendum breytinganna er einnig nákvæmari skimun gjafablóðs. NAT-skimun er notuð til að leita að blóðbornum sýkingum, meðal annars HIV og lifrarbólgu B og C.
Ýmis önnur atriði geta eftir sem áður haft áhrif á hvort einstaklingur getur gefið blóð, svo sem sjúkdómar, lyf, ferðalög og aðgerðir. Blóðbankinn metur hæfi hvers blóðgjafa út frá heilsufarsupplýsingum og viðtali.
Stóra breytingin frá 1. september er því sú að kynhneigð eða kyn bólfélaga á ekki lengur eitt og sér að útiloka fólk frá því að gefa blóð.