Hinseginhátíðir sumarið 2025 – Gleðigöngur, tónlist og fjölbreytni um allt land

Hinseginhátíðir sumarið 2025 – Gleðigöngur, tónlist og fjölbreytni um allt land

Hinsegin dagar eða Reykjavík Pride standa yfir 5.–10. ágúst og Gleðigangan verður gengin laugardaginn 9. ágúst 2025.

Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni.

Hér má lesa allt um hátíðina, viðburðina, hvernig þú getur hjálpað til sem sjálfboðaliði eða skráð hópinn þinn í gönguna: hinsegindagar.is

Hinsegin Kaupfélagið

Þau reka líka lítið Hinsegin Kaupfélag þar sem má nálgast alls kyns skemmtilegan varning.

Hinsegin kaupfélagið er samvinnuverkefni tveggja félagasamtaka, Hinsegin daga í Reykjavík og Samtakanna ’78. Bæði félögin hafa unnið fyrir hinsegin fólk í tugi ára og nú gefst þér tækifæri til að styrkja félögin með því að versla hér! Með því að versla í Hinsegin kaupfélaginu tekur þú þátt í að efla réttindabaráttu hinsegin fólks og styðja við fjölbreytt verkefni sem stuðla að sýnileika, fræðslu og jafnrétti fyrir alla. Tekjur af sölu rennur beint til þessara félaga og hjálpar þeim að halda áfram mikilvægri vinnu sinni. Sýndu samstöðu og stuðlaðu að jákvæðum breytingum með því að versla hjá okkur!

hinseginkaupfelagid.is

 

Ný hátíð á Norðurlandi eystra

En hátíðahöldin er víðar en á höfuborgarsvæðinu: Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin dagana 18.-22. júní 2025.

Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.

Öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra standa að hátíðinni.

Hér má skoða alla viðburðina og fræðast um hátíðana: www.hinseginhatid.is

Sjá líka frétt á mbl.is

 

Hinseginhátíð Vesturlands

Hinseginhátíð Vesturlands fer fram í Borgarnesi 26.–28. júní, í skemmtilegu samstarfi við Brákarhátíð, með tónlist, vinnustofum, fræðslu og gleði.

Dagskrá Hinseginhátíðar Vesturlands og Brákarhátíðar er hér á Facebook:

 

 

 

Torg fjölbreytileikans málað

Mynd: www.hinseginhatid.is
Mynd: www.hinseginhatid.is

Meðal viðburða má nefna að í tilefni af Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra er stefnt á samverustund í listigarðinum á Þórshöfn 21. júní þar sem fólk hjálpast að við að mála Torg fjölbreytileikans og eiga skemmtilega stund saman.

 

Myndir ljósmyndara okkar frá Gleðigöngum fyrri ára má finna í myndagalleríum okkar bæði hér og á gayice.is