Þrjár ólíkar hinsegin sviðslistaupplifanir verða í boði í Tjarnarbíói á Hinsegin dögum. Dagana 4.–6. ágúst taka þar við hvert af öðru uppistand og persónuleg frásögn ALOK, norræna sólóverkið STAR XVI – to begin again og kynsegin endursögnin Ég, Jóhanna.
Aðeins ein sýning er fyrirhuguð af hverjum viðburði.
ALOK – uppistand, ljóð og persónuleg frásögn
Bandaríski grínistinn, ljóðskáldið og listakvárið ALOK kemur fram í Tjarnarbíói þriðjudaginn 4. ágúst klukkan 19:00.
ALOK hefur hlotið alþjóðlega athygli fyrir sýningar sem blanda saman beittum húmor, uppistandi, töluðu máli og einlægum persónulegum frásögnum. Áhorfendur mega búast við kvöldi sem fjallar með bæði húmor og alvöru um kyn, sjálfsmynd, fordóma og það að fá að lifa sem maður sjálfur.
Sindri „Sparkle“ Freyja, rithöfundur, grínisti og leikari sem hefur meðal annars vakið athygli í enskumælandi jaðarsenunni í Reykjavík, kemur einnig fram.
Hér má sjá stiklu fyrir uppistandssérþátt ALOK, Biology:
- Hvenær: Þriðjudaginn 4. ágúst kl. 19:00
- Hvar: Tjarnarbíó
- Tungumál: Enska
- Miðaverð: Frá 6.900 kr.
Nánari upplýsingar og miðasala: ALOK í Tjarnarbíói.
STAR XVI – ferðalag um sjálfsmynd og tilheyrandi
Norræna sólóverkið STAR XVI – to begin again verður sýnt miðvikudaginn 5. ágúst klukkan 20:00.
Verkið segir frá Elia, sem á erfitt með að finna sinn stað í heiminum og flýr á haf út með því að ganga til liðs við hvalveiðiskipið STAR XVI. Á ferðalaginu um ókunnugt og ólgandi landslag þarf Elia að horfast í augu við eigin ótta, ímyndunarafl og væntingar til heimsins.
Um leið og hið ytra ferðalag vindur fram tekur hið innra landslag breytingum. Elia öðlast smám saman skýrari skilning á sjálfu sér og rétti sínum til að eiga sinn stað í heiminum.
Sýningin blandar saman hreyfingu, tónlist, hljóði, brúðulist og hlutum á sviðinu. Hún rannsakar sjálfsmynd, tilheyrandi og kynhlutverk í umhverfi sem mótast af hafinu og sögu hvalveiða.
STAR XVI er norrænt samstarfsverkefni sem var þróað í Noregi og á Íslandi og sækir innblástur í sögulegt hvalveiðiskip sem sigldi við Íslandsstrendur. Verkið er framleitt af Scenekraft í samstarfi við íslenska brúðuleikhúsið Handbendi og Hinsegin skjalasafnið við Háskólann í Bergen.
Synne Garvik er ein á sviðinu. Elsa Aanensen skrifar og leikstýrir verkinu, sem var frumsýnt í Noregi í september 2025.
- Hvenær: Miðvikudaginn 5. ágúst kl. 20:00
- Hvar: Tjarnarbíó
- Lengd: Um 45 mínútur
- Miðaverð: Frá 2.900 kr.
Nánari upplýsingar og miðasala: STAR XVI – to begin again.
Ég, Jóhanna – kynsegin Jóhanna af Örk
Leiksýningin Ég, Jóhanna verður sýnd fimmtudaginn 6. ágúst klukkan 20:00.
Verkið er kraftmikil og persónuleg uppreisn gegn kynjatvíhyggjunni þar sem saga Jóhönnu af Örk er sögð á nýjan hátt. Jóhanna birtist hér ekki sem fjarlæg sögupersóna heldur sem ung og kynsegin manneskja sem berst gegn samfélagi sem reynir að stjórna líkama hennar, kyni og örlögum.
„Þeir halda í alvörunni að ég þekki ekki stríð? Því eins og, er það ekki satt að vera fætt í kvenlíkama, þýðir það ekki í þessum karlmannaheimi stríð upp á hvern dag? Og síðan, að vera fætt sem stúlka en vera það ekki? Það er borgarastyrjöld. Blóðug og grimm.“
Höfundur verksins er breska leikskáldið Charlie Josephine. Upprunalega verkið, I, Joan, var frumsýnt í Shakespeare’s Globe í London árið 2022 og vakti mikla athygli fyrir kynsegin endurtúlkun sína á sögunni.
Valgeir Skagfjörð þýddi verkið á íslensku og Aron Martin Ásgerðarson leikstýrir. Í stórum leikhópi eru meðal annars Elísabet Skagfjörð, Albert Halldórsson, Fannar Arnarsson, Elva María Birgisdóttir, Sindri Freyja Bjarnabur, Ari Ísfeld og Sigurður „Gógó“ Starr Guðjónsson.
Athugið: Í sýningunni er fjallað um stríð, ofbeldi, kynferðisofbeldi og morð. Þar er sviðsett ofbeldi og notuð blikkandi ljós og reykur.

- Hvenær: Fimmtudaginn 6. ágúst kl. 20:00
- Hvar: Tjarnarbíó
- Tungumál: Íslenska
- Miðaverð: Frá 4.900 kr.
Nánari upplýsingar og miðasala: Ég, Jóhanna.