120 Beats Per Minute

120 Beats Per Minute 120 Beats Per Minute
Watch the video

120 Beats Per Minute

Hvað þarf til að berjast gegn heimsfaraldri? Með þekkingu, hugrekki og þrautseigju að vopni berst hópur fólks sem aktívistar til að fræða fólk um AIDS í þessari verðlaunamynd sem var frumsýnd í Bíó Paradís 25. ágúst 2017 í samvinnu við HIV-Ísland.

Að sýningu lokinni buðu HIV-Ísland samtökin upp á stuttar umræður eftir myndina með Sóttvarnalækni.

Franski leikstjórinn Robin Campillo teflir hér fram stórkostlegri kvikmynd byggða á Parísarhópnum sem lagði líf og sál í aktivisma snemma á tíunda áratugnum.

Morgunblaðið gaf kvikmyndinni 120 Beats Per Minute fimm stjörnur: „Þannig er endurspeglað hvað við erum öll sérstök en líka að við eigum það sameiginlegt að vera mannleg, hjarta okkar slær 120 slög á mínútu og við erum þrátt fyrir allt frumuklasar sem geta eyðilagst vegna innrásar agnarsmárrar veiru.“

Myndin var í keppni á kvikmyndahátíðinní á Cannes 2017 þar sem hún hluta GRAND PRIX aðalverðlaun dómnefndar sem spænski leikstjórinn Pedro Almodóvar stýrði.

Kvikmyndin hlaut Queer Palm verðlaunin, FIPRESCI og aðalverðlaun International Cinephile Society Awards. Myndin er tilnefnd til LUX PRIZE verðlaunanna 2017.

Hér eru nokkrar umsagnir kvikmyndagagnrýnenda um myndina:

„Aktívistadramað sem leikstjórinn Robin Campillo færir okkur fléttar saman hinu persónulega, hinu pólitíska og hinu erótíska með hjartað að vopni“ – Variety

„Mikilvægur erótískur óður til aktívismans” – The Telegraph

Nýlegar greinar