Framávið er lag Hinsegin daga 2026, kraftmikið og uppörvandi popplag í flutningi Guðjóns Þorgils Kristjánssonar.
Lagið var frumflutt í þættinum Vasadiskó hjá Margréti Maack á Rás 2 þann 30. júlí og er nú aðgengilegt á helstu streymisveitum.
Guðjón samdi lagið ásamt Axel Inga Árnasyni og Ingu Auðbjörgu K. Straumland. Titillinn Framávið fangar vel anda Hinsegin daga: að fagna þeim sigrum sem hafa unnist en halda jafnframt áfram baráttunni fyrir jafnrétti, sýnileika og frelsi allra til að vera þau sjálf.
Guðjón hefur vakið mikla athygli fyrir kraftmikla rödd og sterka sviðsframkomu. Fyrr á árinu vann hann Söngkeppni framhaldsskólanna og með Framávið færir hann Hinsegin dögum lag sem hvetur okkur til að standa saman, horfa bjartsýn fram á veginn og halda áfram að skapa samfélag þar sem öll fá að blómstra.
Lesið meira um lagið og aðstandendur þess hjá Víkurfréttum.