Hreiðrið – sögur um að tilheyra
Hvaða bók, kvikmynd eða leikhúsverk fær þig til að finna að þú tilheyrir?
Þeirri spurningu er velt upp í Hreiðrinu, innsetningu á Borgarbókasafninu í Grófinni þar sem LGBT+ fólk segir frá verkum sem hafa sérstaka merkingu fyrir það. Sögurnar voru teknar upp í tengslum við Hinsegin daga og má hlusta á þær á vef safnsins.
Fjórar sagnanna eru á íslensku.
Reyn Alpha Magnúsdóttir, aktívisti og kennaranemi, valdi leikritið Skammarþríhyrningurinn eftir leikhópinn Stertabendu. Hlusta á sögu Reyn Alpha
Sebastían Oddný Arnarson, mannfræðingur, valdi Söguna af Þuríði formanni og Kambsránsmönnum eftir Brynjúlf Jónsson frá Minna-Núpi. Hlusta á sögu Sebastíans
Ólafur Aðalsteinsson, listamaður og leikari, valdi skáldsöguna Áður en ég dey eftir Jenny Downham. Hlusta á sögu Ólafs
Ólafur Helgi „Starína“, draglistamaður, tískuhönnuður og listkennaranemi, valdi kvikmyndina Trick eftir Jim Fall. Hlusta á sögu Starínu
Fimm aðrar sögur verkefnisins eru á ensku og þar segja Rebecca Hidalgo, Sindri „Sparkle“ Freyja, Nas, Dori Baldvinsson og Eliott-Spencer Loki Hjaltalín frá verkum sem hafa gefið þeim tilfinningu fyrir því að tilheyra.
Saman mynda sögurnar persónulegt safn bóka, tónlistar, kvikmynda og sviðsverka – og um leið litlar frásagnir um það hvað getur fengið okkur til að finna að við eigum einhvers staðar heima.
Innsetningin Hreiðrið: sögur um að tilheyra er á 2. hæð Borgarbókasafnsins í Grófinni út september. Hljóðsögurnar verða áfram aðgengilegar á netinu eftir að innsetningunni lýkur.