class='com_content view-article layout-blog itemid-318 j62 j40 mm-hover'> Samkynhneigð - Sex Ed – kynfræðslukarnival fyrir fullorðna

Sex Ed – kynfræðslukarnival fyrir fullorðna

Sex Ed – kynfræðslukarnival fyrir fullorðna

Fullorðinssirkus, kabarett og kynfræðsla mætast í Sex Ed, sem verður frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins 2. október.

Sýningin er samstarf íslensku kabarettsenunnar og Visceral Abstractions frá New York, absúrdísks sirkus- og brúðuleikhúskollektívs sem blandar saman brúðum, líkama, loftfimleikum, húmor og súrrealískri sviðslist.

Í Sex Ed eru mannslíkaminn, löngunin og samskiptin í forgrunni. Sýningin hefur áður verið þróuð í nokkrum útgáfum í New York og fær nú íslenska útgáfu í Borgarleikhúsinu.

Meðal þeirra sem koma að sýningunni eru Gógó Starr og Sindri Freyja Bjarnabur. Gógó kemur að listrænni mótun sýningarinnar sem dramatúrgur og sér einnig um leikgervi ásamt Visceral Abstractions. Gógó er jafnframt í hópi höfunda og flytjenda. Sindri er einnig í hópi höfunda, leikara, dansara og sirkusfólks.

Juanita Cardenas og Margrét Erla Maack leikstýra sýningunni og upprunalega hugmyndin er frá Visceral Abstractions.

Sex Ed verður frumsýnt 2. október og sýningar halda áfram á Litla sviði Borgarleikhússins í október.

Skoða sýningartíma og kaupa miða