1. des. 2017. Ábyrgð á eigin heilsu

1. des. 2017. Ábyrgð á eigin heilsu 1. des. 2017. Ábyrgð á eigin heilsu
Watch the video

1. des. 2017. Ábyrgð á eigin heilsu

Sigrún Grendal, formaður HIV Ísland flutti erindið: Ábyrgð á eigin heilsu. Þar fjallaði hún meðal annars um þann ótrúlega árangur hefur náðst í baráttunni við HIV/Alnæmi síðastliðin 15 ár, árangur vekur bjartsýni og alheimsmarkmiðið er nú að útrýma faraldrinum fyrir 2030.

Upptaka frá málstofu HIV Ísland sem haldin var á Alþjóðlega Alnæmisdeginum 1. des. 2017.

Fyrir neðan eru nokkur stikkorð úr erindinu.


Að bera ábyrgð á eigin heilsu – Hvað þýðir það?

  • Vegna tilkomu betri lyfja lifa HIV jákvæðir lengur.
  • HIV dregur ekki úr lífslíkum.
  • Aukaverkanir lyfjanna nánast engvar.
  • Sumir sitja þó uppi með afleiðingar fyrri tíma, lyfin o.fl.
  • Spurning hvaða afleiðingar fólk situr uppi með bæði andlega og félagslega. Fólk upplifði hryllilega tíma.

 

Hækkandi aldur – nýjar áskoranir

  • Um 50 % HIV jákvæðra í Bandaríkjunum eru komin yfir fimmtugt.
  • Sumir komnir á dvalarheimili fyrir aldraða.
  • Þurfum að huga að fræðslu starfsfólks og viðhorfsbreytingum þeirra sem sinna eldra fólki.
  • Eldra fólk er í áhættuhóp hvað varðar HIV smit.
  • Ekkjufólk og fráskilið fólk er t.d ekki meðvitað um áhættuna á HIV smiti. Ekki eins upplýst.
  • Fólkið er komið úr barnseign og gleymir öðrum áhættuþáttum s.s kynsjúkdómum.

 

Lífslíkur HIV jákvæðra eru þær sömu og annarra en samt …

  • Með hækkandi aldri aukast líku á ýmsum sjúkdómum hjá HIV jákvæðu fólki sem og hjá jafnöldrum.
  • Að eldast er ákveðinn póstur og að vera HIV jákvæður er annar póstur. Samanlagt geta þessir tveir póstar aukið áhættu á ákveðnum sjúkdómum.
  • Helst er talað um hjarta og æðasjúkdóma, beinþynningu og ákveðnar tegundir krabbameins.

 

Að bera ábyrgð á eigin heilsu

  • Að greinast með HIV í dag þarf ekki að hafa mikil áhrif á líf viðkomandi.
  • En þú þarft að vera ábyrgur og taka ráðin í þínar hendur – með öðrum orðum „þú berð ábyrgð á eigin heilsu.
  • Hvað ætlarðu að gera í því?
  • Það er algjörlega undir þér sjálfum komið hvernig þú tekst á við hlutina.

 

Þú berð ábyrgð á eigin heilsu

  • Það vita allir hvað þarf að gera til að bæta heilsuna og koma sér í betra form.
  • Það sama gildir um HIV jákvæða og alla aðra.
  • Lifa heilbrigðu lífi. Þarft ekki að fara út í öfgar – bara gera það sem allir vita að þarf að gera – gera það skemmtilegt.
    • Hreyfa sig
    • Borða hollari mat
    • Hætta að reykja
    • Hlæja meira

 

Og þú sem ert HIV jákvæður …

  • Þú hefur greinst HIV jákvæður – hvað ætlarðu að gera í því?
  • Mundu að það eru til svo ótrúlega margir sjúkdómar sem eru svo miklu hræðilegri/verri en HIV a.m.k fyrir okkur sem höfum svona gott aðgengi að heilbrygðisþjónustu, lyfjum o.fl.
  • Plís, ekki festast í hugsuninni um „skömm“. Af hverju í ósköpunum á fólk að skammast sín fyrir að hafa greinst HIV jákvætt?
  • Og plís, segðu frá – treystu fólki.
  • Ekki láta feluleikinn verða þér hættulegri en sjúkdómurinn er þér.

 

Að bera ábyrgð á eigin heilsu

  • Að bera ábyrgð á eigin heilsu þýðir líka að við þurfum að vera virk í samskiptunum við lækninn okkar.
  • Við þurfum að undirbúa okkur fyrir læknisheimsóknina, vera með spurningar og athugasemdir á hreinu. Ekki láta lækninn eingöngu sjá um þetta.
  • Verum hreinskilin og opin og segjum frá því sem okkur liggur á hjarta.
  • Eitt er víst „læknirinn er enginn hugsanalesari“ .

 

Að bera ábyrgð á eigin heilsu

  • Að bera ábyrgð á eigin heilsu getur þýtt svo margt.
  • Hvað kynlíf varðar þá ber hver og einn ábyrgð á sjálfum sér. Samþykktu ekki neitt sem þér er á móti skapi – það sem þú samþykkir er á þína ábyrgð.
  • Mér hefur þótt skrýtið til þess að hugsa að allri ábyrgð sé skellt á hinn HIV jákvæða þegar kynlíf er annars vegar. Á ekki hver að bera ábyrgð á sjálfum sér?

 

Allir ættu að vita að …

  • Eins og flestir vita þá eru HIV lyfin í dag það góð að þau bæla veiruna niður og halda henni ómælanlegri. Veiran verður því óvirk og þar af leiðandi ósmitandi.
  • HIV jákvæðir á lyfjum smita ekki aðra af HIV veirunni.
  • Sá sem ekki veit að hann er HIV jákvæður og er þar af leiðandi ekki á lyfjum getur smitað aðra án þess að gera sér grein fyrir því.
  • Það má eiginlega útfæra þetta þannig að HIV jákvæður á lyfjum er í raun sá sem ekki smitar af HIV.
  • Hvað með þig? Veist þú um þinn status?

 

Aðgengileg HIV próf – hraðpróf

  • Aukin HIV tilfelli greindust síðastliðin 2 ár.
  • Til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar þarf fólk að fara í HIV próf.
  • Því aðgengilegri sem prófin eru því meiri líkur eru á því að fólk nýti sér þau.
  • Hraðpróf eru eitt af þeim baráttumálum sem HIV Ísland hefur sett á oddinn.

 

Að bera ábyrgð á eigin heilsu

  • Að bera ábyrgð á eigin heilsu inniber þess vegna að fólk nýti sér þessi próf og það af minnsta tilefni.
  • Þegar um er að ræða eins alvarlegan smitsjúkdóm og HIV er þá er betra að prófa oftar en sjaldnar.
  • Þetta er sú leið sem vegur hvað stærst í að fyrirbyggja útbreiðslu HIV.
  • Ekkert kemur þó í stað forvarna og fræðslu.
  • Takið ábyrgð á eigin heilsu.

 

Splæstu í smokk!

  • Takið ábyrgð á eigin kynheilsu.
  • Til er forvarnarlyf gegn HIV – PREP
  • Til er forvörn gegn HIV og öllum öðrum kynsjúkdómum – sú forvörn heitir „smokkur“.
  • Taktu ábyrgð á eigin kynheilsu – Splæstu í smokk!