Queer Situations er bókmenntahátíð sem leggur áherslu á hinsegin bókmenntir í víðum skilningi. Þar er sjónum beint að bókum eftir höfunda sem skilgreina sig sem hinsegin, en einnig að bókmenntum sem falla utan meginstraumsins og opna nýjar leiðir í samtali um bókmenntir, samfélag og sjálfsmynd.
Hátíðin vill skapa vettvang fyrir hinsegin raddir í bókmenntum, efla umræðu á þeirra eigin forsendum og tengja íslenskt bókmenntalíf við alþjóðlegan vettvang hinsegin bókmennta. Sérstök áhersla er lögð á að bjóða erlendum höfundum til landsins og opna þannig samtalið um stöðu, form og framtíð hinsegin bókmennta á Íslandi.
Aðstandendur hátíðarinnar leggja áherslu á inngildingu og aðgengi. Markmiðið er að skapa sjálfstæðan bókmenntaviðburð þar sem hinsegin höfundar og verk þeirra fá rými, athygli og virka hlustun — ekki aðeins sem hluti af stærri hátíðum, heldur sem sérstakur vettvangur í samtali við aðra bókmenntaviðburði.
Á bak við Queer Situations standa rithöfundarnir Halla Þórlaug Óskarsdóttir og Eva Rún Snorradóttir, ásamt hönnuðinum Elíasi Rúna og hópi sjálfboðaliða.
Nánari upplýsingar: Queer Situations

Myndir af heimasíðu Queer Situations