Ég, Jóhanna er kraftmikil og persónuleg leiksýning í Tjarnarbíói þar sem sagan af Jóhönnu af Örk er sögð á nýjan hátt. Verkið er uppreisn gegn kynjatvíhyggjunni og fjallar um sjálfsmynd, vald, stríð, líkama og frelsi.
Sýningin byggir á verkinu I, Joan eftir breska leikskáldið Charlie Josephine, sem var sýnt við miklar vinsældir í Shakespeare’s Globe í London árið 2022. Í íslensku uppfærslunni er Jóhanna kynsegin persóna, rafmögnuð, þrjósk og full af von.
Verkið er bæði fögnuður og bylting; ástríðufull endursköpun á einni þekktustu sögu Evrópu, þar sem spurt er hver fái að segja söguna, hver fái að skilgreina hetjur og hvernig við brjótumst út úr þeim hlutverkum sem okkur eru ætluð.
Ég, Jóhanna er sýnd í Tjarnarbíói dagana 7.–17. maí. Miðaverð er frá 4.900 kr.
Höfundur: Charlie Josephine
Þýðing: Valgeir Skagfjörð
Leikstjórn: Aron Martin Ásgerðarson
Nánari upplýsingar og miðasala: Ég, Jóhanna á Tix
Athugið að í sýningunni er fjallað um stríð, ofbeldi, kynferðisofbeldi og morð. Þar er sviðsett ofbeldi og notuð blikkandi ljós og reykur.