Mánaðarlegur hittingur fyrir homma - The hump day social

Mánaðarlegur hittingur fyrir homma - The hump day social

Mánaðarlega hittast hommar og njóta félagsskapar hvers annars á viðburði sem nefnist Hump Day Social eða mið-vikudags hittingur. Það eru þeir Todd Kulczyk og Andres Pelaez sem komu með þennan skemmtilega sið til landsins og skipuleggja viðburðina. Mánaðarlega velja þeir nýjan stað og kynna staðsetninguna í lokuðu Facebook grúppunni: The Hump Day Social og opnu grúppunni Hommaspjallið.

Staðarhaldari útbýr gjarnan sérstakan kokteil í tilefni dagsins og þar sem viðburðirnir eru frá kl. 19:00 til 22:00 hittir það oft líka á Happy Hour. Allir karlmenn 20 ára og eldri eru velkomnir, hvort sem þeir drekka áfengi og eða ekki, eru einstaklingar eða pör (í opnum eða lokuðum samböndum), poly eða bdsm. Eiginlega þarftu bara að vera hommi. Tilgangurinn er að skapa jákvætt rými fyrir homma til að komast í gegnum vikuna, lyfta glasi, njóta góðs félagsskapar og kannski stækka vinahópinn.

Næsti viðburð verður 16. nóvember á Slippbarnum og aftur 6. desember á nýjum stað sem verður tilkynntur síðar.

 

Nýlegar greinar