Mánaðarlega hittast hommar og njóta félagsskapar hvers annars á viðburði sem nefnist Hump Day Social eða miðvikudags hittingur. 28. ágúst á að hittast á efri hæðinni á Curious í Hafnarstræti 4, efri hæð, milli kl. 19-22 og má búast við að fyrstu gestir Bears on Ice kíki við en sá viðburður byrjar fimmtudag 29/8 og stendur yfir alla helgina.
Þessir viðburðir Hump Day Social hafa sannarlega verið skemmtileg nýbreytni í félagslífinu og vel sóttir af fjölbreyttum hópi á öllum aldri og með mismunandi bakgrunn. Það eru allir opnir fyrir að kynnast nýju fólki þarna svo það er ekkert mál að koma einn þó þú þekkir ekki neinn.
Það eru þeir Todd Kulczyk og Andres Pelaez sem komu með þennan skemmtilega sið til landsins og skipuleggja viðburðina.
Mánaðarlega velja þeir nýjan stað og kynna staðsetninguna í lokuðu Facebook grúppunni: The Hump Day Social og opnu grúppunni Hommaspjallið.