Humpday Social - mánaðarlegur hittingur homma og bi manna

Humpday Social - mánaðarlegur hittingur homma og bi manna

Mánaðarlega hittast hommar og njóta félagsskapar hvers annars á viðburði sem nefnist Hump Day Social eða mið-vikudags hittingur. 

Það Harald Schaller sem sér um að skipuleggja viðburðina sem byrjuðu fyrst 2017. Mánaðarlega er valinn nýr staður og staðsetningin kynnt í lokuðu Facebook grúppunni: The Hump Day Social og stundum Facebook síðunni okkar eða í opnu grúppunni Hommaspjallið sem við mælum með að allir gay og bi karlar skrá sig í.

Staðarhaldari útbýr gjarnan sérstakan kokteil í tilefni dagsins og þar sem viðburðirnir eru frá kl. 19:00 til 22:00 hittir það oft líka á Happy Hour. Allir karlmenn 20 ára og eldri eru velkomnir, hvort sem þeir drekka áfengi og eða ekki, eru einstaklingar eða pör (í opnum eða lokuðum samböndum), poly,  bdsm o.s.frv.. Eiginlega þarftu bara að vera hommi eða bi. Tilgangurinn er að skapa jákvætt rými fyrir homma til að komast í gegnum vikuna, lyfta glasi, njóta góðs félagsskapar og kannski stækka vinahópinn.

Næsti hittingur verður 28. ágúst í The Reykjavík Edition, það er engin dagskrá menn bara spjalla sín á milli svo það er hægt að koma hvenær sem er milli kl. 19 og 22 og allir velkomnir.

Reykjavík Bear hefst formlega 29. ágúst með fjölda erlendra gesta og má búast við að erlendir gestir hátíðarinnar sem þegar eru komnir til landsins noti tækifærið og mæti þarna líka.

Þar sem hópurinn er með prívat skráningu hjá Facebook þarf líklega Facebook vinur að bjóða þér í hana, það er um að gera að mæta og vonandi kynnast nýjum vinum.